Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ísland undir stjórn Berlínar og Parísar
Miðvikudagur, 17. ágúst 2011
Nú liggur það ljóst fyrir. Stefnt er að nánari efnahagslegum samruna evrusvæðisins og mynduð verður sameiginleg efnahagsstjórn. Þetta var niðurstaða á fundi Angelu Merkel, kanslara Þýskalands og Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands.
Styrmir Gunnar segir meðal annars á Evrópuvaktinni:
Yfirlýsing þeirra Merkel og Sarkozy þýðir, að sjálfstæði Ísland er horfið í einu vetfangi. Við munum við slíkar aðstæður ekkert hafa um eigin mál að segja."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:07 | Slóð | Facebook
Hroki Samfylkingarinnar og hótun um pólitíska einangrun
Mánudagur, 15. ágúst 2011
Forystumenn Samfylkingarinnar eru sannfærðir um að það sé vænlegt til árangurs að beita hótunum gagnvart pólitískum andstæðingum. Þeim tókst að brjóta vinstri græna til hlýðni í ríkisstjórn og fá þá til að svíkja eitt helgasta kosningaloforð sitt að standa heilshugar gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Á síðustu mánuðum ársins 2008 mitt í hruninu varð samfylkingum töluvert ágengt gagnvart sjálfstæðismönnum, sem með ístöðuleysi hröktust undan kröfum um að Ísland gerðist aðili að Evrópusambandinu.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, telur að enn sé lag til að beita hótunum.
Eins og hundur í bandi
Mánudagur, 15. ágúst 2011
Félagar í VG segja á Vinstrivaktinni gegn ESB, að þingmenn flokksins séu líkt og hundar í bandi Samfylkingarinnar. Þeir binda vonir við að yfirlýsing Bjarna Benediktssonar um að draga umsókn að Evrópusambandinu til baka, geri VG kleift að klippa á bandið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook
Steingrímur hafnar ábyrgð á SpKef
Mánudagur, 15. ágúst 2011
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafnar því að hann beri nokkra ábyrgð á málefnum SpKef, sem var stofnað til að taka yfir starfsemi Sparisjóðs Keflavíkur. Landsbankinn hefur tekið yfir SpKef og telur að ríkið þurfi að leggja fram 38 milljarða króna vegna þessa en fjármálaráðherra hefur talið að 11 milljarðar dugi. Ríkisbankinn og ráðherra eru því ósammála.
Dómstólar skipta ráðherra engu
Föstudagur, 11. febrúar 2011
Hjá öðrum lýðræðisþjóðum hefði ráðherra sem brýtur svo gróflega lög og reglur verið látinn fjúka. En hér á landi er allt leyfilegt hjá ráðherrum og þeir komast upp með allt. Ef ráðherrar eru ósáttir við lög eiga lögin bara að víkja en ekki þeir að þeirra mati.
Þessi hörðu orð lét Jóhanna Sigurðardóttir falla á þingi 16. apríl 2004. Tilefnið var að kærunefnd jafnréttismála hafði gefið út það álit að Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, hefði ekki virt jafnréttislög við skipan hæstaréttardómara.
Tæpum fimm árum síðar komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hefði sem félagsmálaráðherra gerst brotleg við 21. grein stjórnsýslulaga þegar hún vék einstaklingi úr stjórnarnefnd fatlaðra og skipaði annan. Í viðtali við Helga Seljan í Kastljósi 16. febrúar 2009 (en þá var Jóhanna orðin forsætisráðherra) var hún óbetranleg og sagðist ekkert þurfa að læra af dómi héraðsdóms. Ekki hafi óeðlilega að þessu staðið að víkja viðkomandi úr stjórnarnefndinni en sér þætti fullkomlega óeðlilega hafa verið staðið að málsókninni. Með öðrum orðum: Í huga Jóhönnu er það óeðlilegt að einstaklingur leiti réttar síns ef hún sem ráðherra brýtur stjórnsýslulög.
Á miðvikudag staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands um að ógilda ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra sem neitaði að staðfesta hluta aðalskipulags Flóahrepps varðandi Urriðafossvirkjun. Viðbrögð Svandísar eru ekki að biðja íbúa Flóahrepps afsökunar á stjórnsýslu sinni sem hefur valdið fjárhagslegum skaða. Nei, hún ætlar að fara í endurskoðun á lagaumhverfi við gerð skipulags. Í frétt Morgunblaðsins segir:
Svandís sagði að ráðuneytið þyrfti að fara yfir dóminn og skoða hvort lagaumhverfi væri nægilega skýrt fyrir sveitarfélögin sem bera ábyrgð á skipulagsvinnunni. Eitt af því sem þyrfti að skoða væri hvort framkvæmdaaðilar gætu tekið þátt í hverju sem er.
Þannig bregðast ráðherrar ríkisstjórnarinnar við niðurstöðum dómstóla. Jóhanna Sigurðardóttir gagnrýnir einstakling sem sækir rétt sinn til dómstóla þegar ráðherra brýtur stjórnsýslulög og Svandís Svavarsdóttir ætlar bara að breyta lögum því dómstólar komust ekki að niðurstöðu sem henni er þóknanleg. Er nema furða að fyrstu viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttir við úrskurði Hæstaréttar um ólögmæti kosninga til stjórnlagaþings, hafi verið þau að best væri að Alþingi færi í kringum um dóminn með því að skipa 25 stjórnlagaþingsmenn á grunni niðurstöðu ólöglegra kosninga.
Þannig er íslenskt framkvæmdavald í dag.
Landsvirkjun í biðstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskiptaævintýri FL Group
Miðvikudagur, 9. febrúar 2011
Það vakti nokkra athygli þegar tilkynnt var 17. febrúar 2006 að FL Group hefði keypt liðlega 8% hlut í danska fyrirtækinu Bang & Olufsen A/S. Flestir Íslendingar þekkja fyrirtækið og flesta hefur dreymt um að kaupa eitthvað af þeim tækjum sem fyrirtækið framleiðir. Fáum hafði dottið í hug að kaupa stóran hlut í fyrirtækinu. Kaup FL á hlutum í Bang & Olufsen kitlaði því hégómagirnd Íslendinga og ekki skemmdi að um danskt fyrirtæki var að ræða.
Samkvæmt upplýsingum FL var markaðsverðmæti hlutarins um 7,5 milljarðar króna. Í mars var tilkynnt um að FL hefði aukið hlut sinn og ætti nú 10,1%. Þegar fyrstu kaupin voru tilkynnt var lokagengi bréfa í Bang & Olufsen 765 danskar krónur. Gengið lækkaði nokkuð eftir það og var 746 danskar krónur í lok 7. mars þegar greint var frá auknum hlut.
Rúmu ári eftir að FL keypti fyrstu hlutabréfin í Bang & Olufsen seldi félagið bréfin með um 110 milljóna króna tapi. Gengi bréfanna var komið niður í 700 danskar krónur á hlut.
Óvænt forstjóraskipti hjá B&O | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað hefur breyst frá 30. desember 2009?
Mánudagur, 7. febrúar 2011
Alþingi samþykkti ofbeldissamninga við Breta og Hollendinga í annað sinn 30. desember 2009. Síðar neitaði forsetinn að staðfesta lögin um ríkisábyrgð og í mars á liðnu ári höfnuðu 98% þeirra sem afstöðu tóku að gangast í ábyrgð fyrir skuldum einkafyrirtækis. Áður en ríkisábyrgðin var samþykkt af meirihluta þingsins var breytingatillaga Péturs H. Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að efnt skyldi til þjóðaratkvæðis felld með 33 atkvæðum gegn 30.
Breytingartillaga Péturs var einföld en þar sagði meðal annars í 1. grein:
"Bera skal heimild fjármálaráðherra til að veita ríkisábyrgð skv. 1. mgr. undir þjóðaratkvæðagreiðslu allra atkvæðisbærra manna svo fljótt sem verða má og eigi síðar en sex vikum frá gildistöku laganna. Heimildin skal veitt sé meiri hluti gildra atkvæða fylgjandi því."
Allir þingmenn stjórnarandstöðunnar, auk nokkurra stjórnarþingmanna studdu tillögu Péturs Blöndal, en það dugði ekki til. Pétur sagði við atkvæðagreiðsluna:
"Hér er lagt til að borgarar þessa lands taki ákvörðun um það hvort þeir vilji taka á sig þessar gífurlegu skuldbindingar, sem ekki aðeins þeir, heldur líka börnin þeirra og barnabörn, munu greiða. Ég treysti þeim fullkomlega til þess ..."
"Hvers vegna er þjóðinni ekki treyst? Óttast ríkisstjórnin kannski þjóðina og vilja hennar? Þetta mál á að bera undir ákvörðunarvald íslensku þjóðarinnar. Ég segi því já."
Illugi Gunnarsson var afdráttarlaus og taldi að sár yrði í þjóðarsálinni ef þjóðin fengi ekki að taka afstöðu til ríkisábyrgðar:
"En í þessu máli er það svo að gangi það fram geta afleiðingar þess orðið svo alvarlegar fyrir íslenska þjóð að það eru þung og sterk rök fyrir því að þjóðin kveði sjálf upp sinn dóm í þessu máli. Það verður sár í þjóðarsálinni ef þetta mál fær ekki að fara til þjóðarinnar og þjóðin að segja skoðun sína beint."
Um það verður ekki deilt að þeir samningar sem nú liggja fyrir eru miklu hagstæðari en fyrri samningar. En eftir sem áður er ætlun ríkisstjórnarinnar að leggja fram opna ríkisábyrgð á skuldum einkafyrirtækis.
Það er rétt sem Illugi Gunnarsson sagði á þingi að Icesave mun skilja eftir sár í þjóðarsálinni ef þjóðin fær ekki sjálf að ákveða framgang málsins. Sárið verður enn dýpra en áður ef Alþingi ætlar með öllu að hunsa skoðun 98% kjósenda sem höfnuðu ríkisábyrgð fyrir tæpu einu ári. Það er því óskiljanlegt af hverju þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki þegar sett það sem skilyrði að frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð öðlist ekki gildi nema með samþykkt meirihluta kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvað hefur breyst frá 30. desember 2009? Svarið er; lítið annað en ein þjóðaratkvæðagreiðsla í framhaldi af synjun forseta Íslands.
Forystufólk í stjórnarflokkunum vill ekki þjóðaratkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
United-maður gerir Eiði gott
Föstudagur, 4. febrúar 2011
Enginn efast um hæfileika Eiðs Smára. Eftir erfiða tíma er vonandi að okkar maður fái tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Mark Hughes knattspyrnustjóri virðist ánægður með Eið Smára.
Einlægir stuðningsmenn Man United vitum að maður sem reis hæst á sínum ferli þegar hann spilaði á besta liði heims, kann að meta hæfileika. Hughes mun gera Eiði Smára gott.
Hughes: Eiður er í góðu formi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Siðrof milli þings og þjóðar
Fimmtudagur, 3. febrúar 2011
Við skulum hafa eitt á hreinu: Þingmenn geta ekki samþykkt samninga við Breta og Hollendinga og veitt ríkisábyrgð á Icesave-skuldum Landsbankans, án þess að bera slíka ákvörðun undir þjóðina.Taki Alþingi slíka ákvörðun, verður ekki aðeins trúnaðarbrestur milli þings og þjóðar heldur siðrof með afleiðingum sem eru margfalt þyngri en nokkur peningaleg skuld.
Allt frá hruni hefur mörgum stjórnmanninum verið tíðrætt um siðferði í viðskiptum og stjórnmálum. Stór orð hafa fallið um siðleysi og áhersla lögð á að siðrof hafi orðið í samfélaginu með skelfilegum afleiðingum.
Í setningarræðu á landsfundi Samfylkingarinnar í mars 2009 var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi formaður, afdráttarlaus þegar hún leit til baka til að skila það sem hafði gerst:
"Ég hef almennt reynt að átta mig á því hvað hafi brugðist, hvað hafi hrundið af stað þeirri atburðarás sem leiddi til þessara hamfara og hvar og hvenær hún hófst. Ég hef síðast en ekki síst reynt að skilja það siðrof sem varð í íslensku samfélagi þegar ákveðinn hópur manna hætti að sækja sér viðmið í íslenskan veruleika, tók upp lífshætti erlendra auðmanna og gaf goðsögninni um stéttlaust samfélag á Íslandi langt nef."
Í ágúst 2009 hélt Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræðu á Hólahátíð og fjallaði þar meðal annars um siðferði og sagði:
"Það var hin blinda efnis- og markaðshyggja, það var dýrkun græðginnar, það var það siðrof sem var að verða í íslensku samfélagi sem við erum að súpa seyðið af."
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði í Morgunblaðsgrein 8. september 2009 að "hagsmunatengsl og siðrof komu okkur í hrunið".
Þannig er hægt að nefna fjölmörg önnur dæmi.
Ögrun
Auðvitað hafa þingmenn frelsi til að hafa þá skoðun að það þjóni hagsmunum Íslendinga best að samþykkja þá samninga við Breta og Hollendinga, sem nú liggja fyrir. Ég er ekki sammála þeim - þvert á móti eigi íslensk stjórnvöld að standa á lagalegum rétti þjóðarinnar í þessu máli sem öðrum. Um hina efnahagslegu áhættu sem fólgin er í því að veita ríkisábyrgð vegna Icesave, ætla ég ekki að ræða að þessu sinni.
Staðreyndin er sú að þeir samningar sem nú liggja fyrir eru á sama grunni og þeir samningar sem þjóðin hafnaði með afgerandi hætti í mars á síðasta ári. Um 93% þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni sagði þvert nei við því að gangast í ábyrgð fyrir skuldum sem Landsbanki Íslands stofnaði til með starfsemi sinni í Hollandi og Bretlandi.
Það er með öllu óskiljanlegt að nokkur þingmaður velti því fyrir sér af nokkurri alvöru að samþykkja ríkisábyrgð og nýja samninga , án þess að sækja til þess sérstakt umboð til þjóðarinnar. Skiptir engu hverju djúpa sannfæringu menn hafa um nýja samninga. Það er fráleitt að halda að hægt sé að fara á bakvið landsmenn - í skjóli þess að nú séu samningar hagstæðari en áður - án þess að það hafi ekki einhverjar afleiðingar. Fyrst þá verður raunveruleg gjá milli þings og þjóðar. Ögrunin sem felst í því að hunsa þjóðaratkvæðagreiðslu mun valda siðrofi.Ýta á alla takka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook
Afstaða sjálfstæðismanna mikil vonbrigði
Miðvikudagur, 2. febrúar 2011
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd leggja til í nefndaráliti að fallist verði á þá samninga sem liggja fyrir við bresk og hollensk stjórnvöld. Þar með verður veitt ríkisábyrgð á skuldum einkafyrirtækisins Landsbankans - verið er að þjóðnýta tap einkafyrirtækja. Þessi afstaða félagana minna veldur miklum vonbrigðum.
Það er mikil ögrun við íslenskan almenning ef meirihluti Alþingis samþykkir hina nýju Icesave-samninga. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hafnaði því í þjóðaratkvæðagreiðslu í mars á liðnu ári, að ríkissjóður gengist í ábyrgð vegna Icesave-skulda Landsbankans. Fyrirliggjandi samningar og frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð, byggja á sömu forsendum og þjóðin hafnaði, þ.e.a.s. að eðlilegt teljist að íslenskir skattgreiðendur beri ábyrgð á starfsemi einkabanka í öðrum löndum. Um 93% þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni sögðu nei við þessum skilningi. Undir þetta viðhorf hefur breska stórblaðið Financial Times tekið. Í leiðara blaðsins í desember var á það bent að ríkisábyrgð á Icesave byggi ekki á lagalegum grunni og alls ekki á sanngirni. Bent var á þá augljósu staðreynd að bresk eða hollensk yfirvöld myndu aldrei taka á sig kröfur erlenda innistæðueigenda upp á þriðjung landsframleiðslu, ef einn af stóru bönkunum þeirra færi á hausinn.
Þingmenn geta og hafa ekkert leyfi til að samþykkja hinn svokallaða nýja Icesave-samning. Því miður virðist sem brestur sem kominn í varðstöðu þeirra þingmanna sem staðið hafa vaktina. Ef það er vilji Íslendinga að taka á sig þessar skuldbindingar, sem þeim ber engin lagaleg skylda til, þá verða þeir sjálfir að ákveða það í þjóðaratkvæðagreiðslu. 63 þingmenn hafa engan siðferðilegan rétt til að taka slíka ákvörðun.Þjónar hagsmunum að ljúka Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook