Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Guði sé lof fyrir kapítalistana
Fimmtudagur, 29. september 2011
Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður gefur lítið fyrir viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttur og Katrínar Júlíusdóttur á gagnrýni Samtaka atvinnulífsins [SA] á störf ríkisstjórnarinnar. Þær stöllur hafi svarað gagnrýninni af miklum þótta og sakað SA um að ganga veg stjórnarandstöðunnar.
Kolbrún bendir Jóhönnu og Katrínu á að horfa yfir ríkisstjórnarborðið á Ögmund Jónasson og Jón Bjarnason, sem sýni "gríðarlegan persónulegan metnað í því að stöðva nær allar uppbyggilegar hugmyndir sem fram koma um eflingu atvinnulífs og innlendar og erlendar fjárfestingar".
Kolröng forgangsröðun leiðir til upplausnar í löggæslu
Miðvikudagur, 28. september 2011
Staðan er þessi: Löggæslan er í uppnámi. Landhelgisgæslan hefur ekki haldið úti varðskipi á Íslandsmiðum í marga mánuði. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er á ráðstefnu í Mexíkó um vegamál. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra virðist ráðþrota og segir að hægt sé að ræða öryggismál lögreglumanna en ekki launahækkanir.
Við getum endalaust deilt um hlutverk ríkisins. Við erum ekki sammála um nauðsyn þess að ríkið reki fjölmiðil, styrki listamenn, reisi tónlistarhús og reki góða sinfóníuhljómsveit. Við getum jafnvel tekist á um það hvort og þá með hvaða hætti ríkið eigi að reka skóla og heilbrigðisþjónustu. Við rifumst um hvort nauðsynlegt sé að ríkið búi til flókið eftirlitskerfi með atvinnulífinu og banni góðgerðasamtökum að baka kökur og kleinur til að selja. En um eitt eru við öll sammála: Ríkið skal tryggja innra og ytra öryggi borgaranna. Grunnhlutverk ríkisins er að halda uppi lögum og reglu.
Sjá T24Orð án athafna - undirskrift án efnda
Miðvikudagur, 28. september 2011
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, er sár og svekkt við Samtök atvinnulífsins [SA]. Samkvæmt skilgreiningu er öll gagnrýni á hennar störf ósanngjörn. Ræða Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, á fundi síðastliðinn mánudag fór mjög í taugarnar á forsætisráðherra. Þar sagði Vilmundur meðal annars:
"Því miður hefur ríkisstjórn hvorki sýnt vilja né getu til að fylgja eftir og efna eigin yfirlýsingar. Samtök atvinnulífsins geta ekki treyst orðum hennar né skriflegum yfirlýsingum enda virðist þar allt á sömu bókina lært.
Orð án athafna - undirskrift án efnda."
... pay before shipment
Þriðjudagur, 20. september 2011
Kostnaðurinn vegna hryðjuverkalaganna er enn að hlaðast upp en Guðlaugur Þór birtir sérstaklega athyglisverð bréfaskipti forráðamanns íslensks fyrirtækisins við danskt fyrirtæki. Hið íslenska og danska fyrirtæki hafa átt viðskipti í áratugi, en danska fyrirtækið lokaði á viðskipti nema gegn staðgreiðslu eftir að Bretar beittu hryðjuverkalögunum.
Fyrir helgina var send fyrirspurn til danska fyrirtækisins um hvort ekki vært hægt að snúa til baka og hætta staðgreiðsluviðskiptum. Þessu var svarað.
Lítil saga af gjaldeyrishöftum
Mánudagur, 19. september 2011
Gjaldeyrishöftin kalla á að Stóri bróðir sé sívakandi. Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur tekið að sér það hlutverk líkt og fyrir liðlega 30 árum, þegar starfsmenn Seðlabankans fóru yfir kortayfirlit þeirra útvöldu sem fengu að nota greiðslukort. Andlit eftirlitsins birtist sem ýmsum hætti og kostnaðurinn fellur á almenning og fyrirtæki.
Félagi minn átti 300 evrur inn á bankareikningi og hugðist taka þær út, þar sem eiginkonan var að fara til útlanda. Í bankanum var honum sagt að til þess að taka út evrurnar, sem voru í hans eigu, yrði hann að framvísa flugfarseðli. Hann þurfti því að fara aftur heim og lagði leið sína aftur í bankann daginn eftir með farseðilinn. En þar með voru vandræðin ekki að baki:
"Þá komst ég að því að ég gæti ekki tekið gjaldeyri útaf mínum eigin gjaldeyrisreikning, heldur þyrfti ég að selja evrur af EUR reikningnum og millifæra inná almennan tékkareikning. Þessi millifærsla var gerð á almennu kaupgengi bankans eða 159,83. Ég þurfti svo að millifæra andvirðið yfir á tékkareikning í íslenskum krónum og kaupa svo 300 evrur af bankanum á genginu 163,47.
Kattasmölun í Danaveldi
Föstudagur, 16. september 2011
Svo kann að fara að hægt verði að flytja út íslenskt "hugvit" til Danmerkur. Í sjálfu sér á það ekki að koma á óvart enda höfum við Íslendingar flutt hugvit til Danmerkur og annarra landa í mörg ár. En möguleikarnir nú eru á nýju sviði - á sviði stjórnmála og kænsku. Slíkt hefði verið talið óhugsandi fyrir nokkrum vikum, hvað þá árum.
Árni Páll: Helle er hugmyndarík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hætt að sjónvarpa frá Alþingi
Föstudagur, 16. september 2011
Á síðustu dögum hafa a.m.k. þrír málsmetandi einstaklingar skrifað um Alþingi og virðingu þess. Styrmir Gunnarsson telur nauðsynlegt að senda þingmenn á námskeið í mannasiðum. Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, gagnrýnir skítlegt eðli íslenskra stjórnmála og Hallgrímur Sveinsson bókaútgefandi hefur áhyggjur af litlu trausti þjóðarinnar á Alþingi.
Í bréfi til Morgunblaðsins segir Hallgrímur að sennilega sé "fátt meira áríðandi á Íslandi þessa dagana en Alþingi Íslendinga álykti að láta hætta beinum sjónvarpsútsendingum frá þingfundum".
Þetta er algjörlega óþolandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég er ekki að hnýta í forsetaræfilinn
Miðvikudagur, 14. september 2011
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti lýðveldisins komst á détante milli hans og gamla flokkseigendafélags Alþýðubandalagsins, sem áður var undir stjórn Svavars Gestssonar en Steingrímur J. Sigfússon leiðir nú. Áralangar erjur voru settar til hliðar en ekki gleymdar. Svavar og Steingrímur J. hafa aldrei gleymt því þegar Ólafur Ragnar náði að setja þá til hliðar þegar hann var kjörinn formaður Alþýðubandalagsins árið 1987.
Hið kalda stríð milli Ólafs Ragnars og flokkseigendafélagsins, sem nú stjórnar Vinstri grænum, kólnaði verulega þegar forsetinn hafnaði Icesave-lögunum í tvígang og landsmenn fengu tækifæri til að hafna lögunum í þjóðaratkvæðgreiðslum. En undanfarna daga hefur hið kalda stríð þróast í fullkomin hernaðarleg pólitísk átök.
Allt gert til að fela tapið
Mánudagur, 12. september 2011
Mikið hlýtur það að vera gaman fyrir þá einkaaðila sem eftir eru á markaði hjólbarða, að vita af því að Framtakssjóðurinn skuli setja fé í keppinautinn. Það er þá bara endurtekning á því þegar N1 hafði ótakmarkaðan aðgang að lánsfé og ákvað að reyna að hrekja öll sjálfstæð hjólbarðaverkstæði út af markaðinum.
Framtakssjóður kaupir hlut í N1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.9.2011 kl. 13:19 | Slóð | Facebook
Flokkseigendafélag VG í hernaði gegn Agnesi
Mánudagur, 12. september 2011
Stuðningsmenn Steingríms J. Sigfússonar hafa fylgt þeirri reglu að best sé að kasta rýrð á sendiboðann - skjótann hann ef hægt er. Agnes Bragadóttir fer greinilega illa í Steingríms-arminn og því er reynt að gera það að aðalmáli að hún hafi skrifað fréttaskýringar Morgunblaðsins. "Þótt Agnes hnerri er ekki ástæða til þess að þingheimur allur leggist í pest," sagði Álfheiður Ingadóttir á Alþingi í liðinni viku. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagðist ekki hafa tíma til þess að lesa Moggann. Flokkseigendafélagið er komið í baráttu við Agnesi Bragadóttur á sama tíma og almennir flokksmenn VG vilja fá skýr svör frá Steingrími J. Sigfússyni.