Allt í loft upp - en hver er jólakötturinn?

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, dregur saman í stuttan pistil ástandið á stjórnarheimilinu. Með pistlinum fylgir síðan myndin sem er hér til hliðar.

talibanar.jpg

"Forsætisráðherra skammast út í innanríkisráðherra fyrir skort á samráði við aðra ráðherra.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra skammast útí sjávarútvegráðherra fyrir skort á samráði.
Iðnaðarráðherra segir fjármálaráðherra hafa farið fram úr sjálfum sér við skattlagningu stóriðju.
Nokkrir þingmenn Samfylkingar ganga af göflunum vegna ákvarðana innanríkisráðherra.
Þingflokksformaður Vg lýsir yfir vantrausti á flokksbróður sinn - sjávarútvegsráðherrann
Nokkrir þingmenn Vg og innanríkisráðherra ætla að leggja fram frumvarp til að hindra fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi.
Forsætisráðherra og nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar mótmæla áherslum Vg um takmarkanir á fjárfestingum útlendinga á Íslandi.
Áform innanríkisráðherra um byggingu fangelsis eru brotin á bak aftur af þingmönnum Samfylkingarinnar. Deilur standa milli stjórnarþingmanna um einstök atriði fjárlaga.
Aðgerðir fjármálaráðherra og ríkisstjórnar varðandi fjárhaglega fyrirgreiðslu til fjármálafyrirtækjanna VBS, Saga og Askar að fjárhæð um 50 ma. kr. sæta rannsókn.
Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina eins og kettina hafa níu líf. Villikettirnir Atli,Lilja og Ásmundur voru hraktir úr Vg.
Verður Jón Bjarnason jólakötturinn í ár?" 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband