Viðskiptaævintýri FL Group
Miðvikudagur, 9. febrúar 2011
Það vakti nokkra athygli þegar tilkynnt var 17. febrúar 2006 að FL Group hefði keypt liðlega 8% hlut í danska fyrirtækinu Bang & Olufsen A/S. Flestir Íslendingar þekkja fyrirtækið og flesta hefur dreymt um að kaupa eitthvað af þeim tækjum sem fyrirtækið framleiðir. Fáum hafði dottið í hug að kaupa stóran hlut í fyrirtækinu. Kaup FL á hlutum í Bang & Olufsen kitlaði því hégómagirnd Íslendinga og ekki skemmdi að um danskt fyrirtæki var að ræða.
Samkvæmt upplýsingum FL var markaðsverðmæti hlutarins um 7,5 milljarðar króna. Í mars var tilkynnt um að FL hefði aukið hlut sinn og ætti nú 10,1%. Þegar fyrstu kaupin voru tilkynnt var lokagengi bréfa í Bang & Olufsen 765 danskar krónur. Gengið lækkaði nokkuð eftir það og var 746 danskar krónur í lok 7. mars þegar greint var frá auknum hlut.
Rúmu ári eftir að FL keypti fyrstu hlutabréfin í Bang & Olufsen seldi félagið bréfin með um 110 milljóna króna tapi. Gengi bréfanna var komið niður í 700 danskar krónur á hlut.
![]() |
Óvænt forstjóraskipti hjá B&O |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook