Innantómar upphrópanir og gagnrýni
Föstudagur, 25. nóvember 2011
Þingmenn Samfylkingarinnar geta haft hátt, talað digurbarkalega og gagnrýnt Ögmund Jónasson innanríkisráðherra og Vinstri græna með óvægnum hætti. Þeir geta hrópað og látið öllum illum látum vegna afturhalds og brjálaðrar ákvörðunar og hugleitt upphátt um eigin meðvirkni. En allt tal, hróp og upphlaup munu engu skipta. Þeir hafa ekki pólitískt þrek til að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu við Vinstri græna og meðvirknin heldur því áfram.
Viðbrögð þingmanna og ráðherra Samfylkingarinnar við ákvörðun Ögmundar Jónassonar um að um að synja beiðni Huang Nubo um undanþágu til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum, eru ágæt dægrastytting fjölmiðla í skammdeginu. Fóður í góðar fyrirsagnir og líflegt 30 sekúnda myndskeið í kvöldfréttum.
Vekur spurningar um samstarfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:53 | Facebook