Fyrir hvað stendur Guðmundur Steingrímsson?
Miðvikudagur, 24. ágúst 2011
Fyrir áhugamenn um stjórnmál er erfitt og jafnvel útilokað að átta sig á því fyrir hvað Guðmundur Steingrímsson stendur í stjórnmálum. Störf hans á Alþingi hjálpa ekki.
Fyrir stjórnmálamann sem stefnir að stofnun nýs stjórnmálaflokks er annað hvort eða hvort tveggja nauðsynlegt: Hann verður að hafa skýra hugmyndafræði og stefnu og hann verður að hafa meiri kjörþokka en almennt gerist.
Ekki er með nokkru móti hægt að draga nokkra ályktun um pólitíska hugmyndafræði Guðmundar, ef litið er til þeirra mála sem hann hefur haft forystu um eftir að hann settist á þing 2009. Í þeim efnum er hann óskrifað blað.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook