Geðþótta ákvarðanir og lögbrot ráðherra
Fimmtudagur, 15. desember 2011
Það er ekki ríkisstjórnarinnar að búa til atvinnu en hún á heldur ekki að þvælast fyrir og koma í veg fyrir atvinnu uppbyggingu. Ég hef séð í hælana á fjárfest um sem voru til búnir að koma hingað með fjárfestingar og atvinnustarfsemi, vegna umræðu ríkisstjórnarflokkana um þjóðnýtingu fyrirtækja og eigna. Geðþótta ákvarðanir, lögbrot ráðherra og endalausar og yfirvofandi breytingar á skattalögum gera það að verkum að fyrirtæki treysta sér ekki til að fjárfesta á Íslandi í dag. Nýjasta upphlaupið vegna kolefnisskatts segir allt sem segja þarf.
Magnús Þór bendir á að Ísland sé hluti af alþjóðlegu hagkerfi og vegna smæðar landsins snúast flest atvinnutækifæri um viðskipti við erlenda aðila, með einum eða öðrum hætti:
Útlendingar koma ekki og bjarga okkur en þeir gætu fjárfest hér í samstarfi við Íslendinga ef báðir hagnast á slíkum viðskiptum, annars ekki. Eins og staðan er þá eru þeir ekki í biðröðum, það er nokkuð ljóst.
Hér talar maður með reynslu. Lýsingin er ekki fögur, en varla er þess að vænta að ný störf verði til þegarfjárfestar óttast Ísland.
Atvinnulausum fjölgar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook