Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Þorgerður Katrín verði fyrsti flutningsmaður

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins fengu mikið og gott veganesti á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Flokksmenn um allt land munu fylgjast áhugasamir með þegar þingmennirnir koma stefnumálum flokksins á framfæri á Alþingi – allt frá róttækum tillögum um lausn á vanda heimilanna til niðurfellingar á nefskatti Ríkisútvarpsins, frá lækkun skatta til utanríkismála.

Það er ekki aðeins eðlilegt heldur nauðsynlegt að þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggi á næstu dögum fram þingsályktunartillögu þar sem utanríkisráðherra er falið að gera hlé á viðræðum við Evrópusambandið. Eðlilegt er að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem hefur verið hliðhollt Evrópusambandinu, sé fyrsti flutningsmaður.

Sjá T24


Depurð brostinna vona

Hinir sanntrúuðu Evrópusambandssinnar í Samfylkingunni urðu fyrir miklum vonbrigðum með landsfund Sjálfstæðisflokksins. Vonir þeirra að sjálfstæðismenn færu af fundi klofnir rættust ekki. Lítill minnihluti sjálfstæðismanna hefur áhuga á aðild ESB en þeir hafa misst alla trú á að þær viðræður sem standa yfir undir forystu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, skili landi og þjóð nokkru. Til þess skorti pólitíska forystu. 

Í depurð brostinna vona skrifar Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar meðal annars á vefsíðu sína:

"Sjálfstæðismenn koma giska stefnulausir í Evrópumálum af landsfundi helgarinnar. Þeir vilja hvorki slíta viðræðum, né halda þeim áfram. Hvorki ganga aftur, né fram. Og líkar best að tvístíga."

Sjá T24


Millistétt í vanda

Eitt hefur sagan kennt: Forsenda velmegunar hvers þjóðfélags er sterk millistétt, sem er drifkraftur efnahagslegra framfara. Öflug millistétt ber uppi samfélagslega þjónustu og  er uppspretta fjármuna sem beint og óbeint standa undir þjóðfélaginu.

Karl Sigfússon verkfræðingur skrifar merkilegan pistil í Fréttablaðið í dag sem lýsir því vel hversu illa hefur tekist til og hversu mikil ósanngirni hefur fengið að ráða för. Lesningin er hrollvekjandi.


Skattkerfi á að vera einfalt

Til einföldunar er oft sagt að hægri menn berjist fyrir sem lægstu sköttum en vinstri menn fyrir ríkisafskiptum. Þetta er ekki verri skilgreining á hægri og vinstri en hver önnur. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að líklegast verði það deilumál í stjórnmálum hversu háir skattar eigi að vera. Í pistli á Pressunni segir Guðlaugur Þór að það ætti hins vegar ekki að vera deilumál að hafa einfalt og auðskilið skattkerfi:

Sjá T24

Tap talið jákvæð rekstrarniðurstaða

Ekki verður annað séð en að það sé fullkomlega eðlilega hjá Þjóðskrá að miða við byggingarkostnað. En mikið myndi það nú létta rekstur margra fasteignafélaga hér á landi ef fasteignagjöld væru miðuð við notkunarverðmæti, enda standa fjölmargar eignir ónotaðar. Og ekki væri verra fyrir margar fjölskyldur að fá að greiða fasteignagjöldin af íbúðum sínum eftir notkunarverðmæti. Notkunarverðmæti íbúða hlýtur  að vera svipað óháð staðsetningu.

Sjá T24


mbl.is Kærir fasteignamatið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um 59 þúsund fjölskyldur með skuldir umfram eignir

Árið 2008 voru liðlega 25 þúsund fjölskyldur með neikvætt eigið fé – skuldir voru hærri en eignir. Árið 2011 voru 59 þúsund fjölskyldur með skuldir umfram eignir. Fjölskyldum með neikvæða stöðu fjölgaði því um nær 34 þúsund á fjórum árum. Á sama tíma fækkaði fjölskyldum sem áttu eignir umfram skuldir um 10 þúsund.

Menn geta deilt um það hvort og þá hversu mikið svigrúm er fyrir hendi til að lækka skuldir heimilanna. En það þarf ekki mikinn skilning á hagfræði að átta sig á því að til framtíðar felst lausnin fyrst og fremst í því að auka atvinnu og kaupmátt. Án þess er hætta á að allar aðgerðir í skuldamálum verði marklausar og til lítils þegar til lengri tíma er litið. 

Sjá T24


Guðmundur Andri: Jóhanna eltir en leiðir ekki

Samfylkingum líður illa. Þeir hafa og munu aldrei eignast sinn Davíð Oddsson. Þess vegna eru þeir uppteknir af Davíð og skilgreina flest í íslenskum stjórnmálum út frá Davíð Oddssyni þó sex ár séu frá því að hann steig út af sviði stjórnmálanna. 

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og dyggur samfylkingur skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann fjallar um formannskjör í Sjálfstæðisflokknum.

Sjá T24


Snýst ekki aðeins um formannskjör

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í komandi viku. Eftir að Hanna Birna Kristjánsdóttir ákvað að bjóða sig fram gegn Bjarna Benediktssyni formanni flokksins, hefur kastljós fjölmiðla beinst að baráttu milli þeirra tveggja. Slíkt er kannski eðlilegt en landsfundarfulltrúa bíða fleiri verkefni. Þeir þurfa að ræða fjölmargar tillögur að ályktunum og jafnvel takast á um orðalag þeirra. Landsfundur markar stefnu Sjálfstæðisflokksins og því skipa ályktanir miklu. Formaður sem hefur ekki skýra stefnumörkun landsfundar verður veikur formaður.

Sjá T24


Hæstiréttur skaðar sannsókn sakamála

Það er töluverð kaldhæðni að lok Baugsmálsins hafi leitt til þess að Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Gerald Sullenberger hafi verið dæmdir til sömu refsingar. Báðir fengu þeir þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm. Þannig var maðurinn, sem í upphafi var eitt helsta vitni ákæruvaldsins, dæmdur fyrir sömu brot og Jón Ásgeir. Í bók minni - Síðasta vörnin - er bent á að Hæstiréttur hafi talið að ákæruvaldinu væri heimilt að nýta sér skýrslur sem teknar voru af Jóni Gerald þegar hann hafði stöðu vitnis.

Sjá T24


Að bjóða til sölu það sem ekki er til sölu

Stundum er erfitt að átta sig á því sem menn segja. Dæmi um þetta er frétt DV um Skúla Mogensen athafnamanni hafi verið boðið að kaupa Iceland Express sem er í eigu Pálma Haraldssonar. Það mun hafa verið gert eftir að fréttir bárust af því að Skúli ásamt fleirum hafi ákveðið að stofna nýtt flugfélag - WOW Air.

Forráðamenn Iceland Express segja fyrirtækið ekki til sölu en samkvæmt er það boðið falt.

Sjá T24


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband