Leigupennar fyrir vondan málstað
Miðvikudagur, 24. ágúst 2011
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ESB-sinnar leiti allra leiða til að rýra trúverðugleika íslensks landbúnaðar. Lögð sé "mikil vinna í að búa til fréttir þess efnis að kjötskortur sé í landinu og að þeir sem starfi við matvælaframleiðslu séu ógn við íslenskt samfélag". Í grein í Morgunblaðinu heldur Ásmundur Einar því fram að ekkert sé til sparað í áróðri gegn landbúnaðinum; "fjármagn frá gömlum útrásarvíkingum gegnum innlenda fjölmiðla og ótakmarkaðir styrkir frá Brussel".
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook